Wednesday, December 07, 2005

geggjað

jæja góðir hálsar,, og aðrir hálsar.
ég var rétt í þessu að bæta nýrri og glæsilegri síðu inná sidebar hjá mér.. Klikkaði bróðir minn er kominn með blogg og þar er hann að segja mjög spennandi framhaldssögu, endilega kíkja á það :)

Annað mál á dagskrá,, MÉR LEIÐIST!!!!!
ég er í vinnunni og hef ekkert að gera..
þannig er nú mál með vexti að ég er búin að vera svo HRIKALEGA dugleg síðustu daga og vikur að ég er komin með himin háan stafla af reikningum sem ég þarf að fara að koma frá mér, það er ekki hægt fyrr en yfirmaðurinn minn reddar einum hlut, hann er að taka sinn tíma í það svo ég fór í verkfall,,, labbaði mér inná skrifstofu til hann og sagði einfaldlega "ég geri ekki fleiri reikninga fyrr en ég kem þessum frá mér..." svo nú er ég bara að hanga og bíða :(

Ég er SVOOOOOO þreytt.
var svo uppgefin í gærkvöldi að ég fór að sofa klukka hálf ellefu, hmmm... sem er nú ekkert svo merkilegt nema afþví að ég vaknaði jafn þreytt í morgun,, er að grotna niður hérna :(
......................................
skoðum aðeins björtu hliðarnar,, ég er búin í vinnunni klukkan fimm, þá get ég farið heim, lagst uppí rúm og farið að sofa :) hehe

ég er að fara til Canary eyja í Janúar :) :) :) :)
Mamma mín ákvað að hún treysti sér ekki til að fara svo hún gaf mér miðann sinn.

HEIL VIKA AF SÓLBÖÐUM OG SJÓ :)

ég held bara að ég geti ekki tuðað meira útí loftið í þetta skiptið :p

untill next time

byebye babes

Helga Kött out

0 Comments:

Post a Comment

<< Home